Stofnun fyrirtækisins
Gunnar Þorláksson húsasmíðameistari og Gylfi Ómar Héðinsson múrarameistari stofna sameignarfélag. Hið nýja félag stóð að framkvæmdum við til dæmis Ránargötu 45, Ármúla 17 og að Þarabakka í Mjóddinni.
1984

Fyrsta verkefnið frá lóðakaupum til afhendingu fullbúinna íbúða
Fyrsta stóra verkefni fyrirtækisins fer í gang með kaupum á lóðum af Lýsi við Grandaveg 41, 43, 45 og 47. Í heildina voru þetta 100 íbúðir sem byggðar voru þar og voru afhentar fullbúnar sem var nýlunda á þessum tíma.
1989

Upphaf Sjálandshverfisins í Garðabæ
BYGG kaupir Stálvík við Arnanesvog og uppbygging Sjálandshverfisins hefst.
1993

Uppbygging hefst í Kópavogsdal
BYGG byrjar að kaupa lóðir í Kópavogsdal. Fyrirtækið vinnur við framkvæmdir við Veghús, Grandaveg og Bíldshöfða
1995

Bygging Smáralindar hefst
Skóflustunga að byggingu Smáralindar var tekin í júlí 1998 en framkvæmdir hófust í ársbyrjun 2000. Smáralind var síðan opnuð við hátíðlega athöfn 10. október 2001. Byggingin er 62.200 fm og er stærsta bygging á landinu sem er opin almenningi.
2000

Uppbygging í Kópavogi og Garðabæ
Fyrirtækið byggði upp hverfi í Sjálandi í Garðabæ og Kópavogi við Lund og Álfkonuhvarf.
2005

Hús við Naustavör rísa
Ásamt áframhaldandi uppbyggingu í Lundi og Sjálandi hófust framkvæmdir við Naustavör á Kársnesi.
2010

Hlíðarhverfi byggt í Reykjanesbæ
1 og 2 áfangi í Hlíðarhverfi í Reykjanesbæ fara af stað.
2015

Uppbygging í Hamrahverfi í Hafnarfirði
Fyrirtækið tók þátt í uppbyggingu í Hamrahverfi í Hafnarfirði og byggði fjölbýlishús við Nónhamar og Hringhamar ásamt atvinnuhúsnæði við Álfhellu.
2020

Fjöldi áhugaverðra verkefna í vinnslu
Fyrirtækið er með á hverjum tíma spennandi verkefni í gangi og má nefna að þessa stundina eru byggingarverkefni í gangi við Bolholt, Hjallabraut og Ásvelli í Hafnarfirði ásamt raðhúsum við Fossvogsveg.
2025



