18.10.2024
Sjötta árið í röð er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars valið fyrirmyndarfyrirtæki af Creditinfo.
18.09.2024
Sala er hafin á 54 íbúðum í Naustavör 60-66. Naustavör hefur notið mikilla vinsælda enda um frábæra staðsetningu að ræða á norðanverðu Kársnesi.
Íbúðirnar eru frá 80.3 til 199.2 fm. Íbúðirnar verða með vönduðum íslenskum innréttingum frá Brúnás og eldhústækjum frá Ormsson. Íbúðirnar eru ýmist með góðum svölum eða stórum timburveröndum. Stæði í bílageymslu fylgja íbúðum.
Hægt er að skoða söluvefinn með því að smella hér
Arkitekt hússins er Gunnar Páll Kristinsson hjá RÝMA arkitektum..
27.02.2024
Sala er hafin á íbúðum í glæsilegum fjölbýlishúsum við Asparlaut 24-26 í Hlíðahverfi, Reykjanesbæ.
Íbúðirnar eru frá 98.9 til 190.9 fm.
Hægt er að skoða söluvefinn með því að smella hér
Arkitektar húsanna eru KRARK.
19.02.2024
KPMG bauð heim í Borgartún 27 í tilefni af Svansvottun á endurbótum á húsnæðinu. Nær verkefnið til fimm hæða af átta, samtals um 4000 fermetrar. Gjörbreyting á öllu yfirbragði og skipulagi endurspeglar fallega hönnun og gott handverk. Margir lögðu hönd á plóginn; hönnuðir, starfsfólk Byggingarfélag Gylfa og Gunnars ásamt ýmsum verktökum. Framkvæmdastjóri Svansins, Guðrún Lilja Kristinsdóttir, afhenti Gunnari Þorlákssyni skjal til staðfestingar á vottun. Þetta verkefni er stærsta endurbótaverkefni sem hefur hlotið Svansvottun hérlendis.
Sjá hér frétt á heimasíðu Svansins á Íslandi: Skrifstofuhúsnæði KPMG hlýtur Svansvottun
Hér má svo sjá nokkrar myndir sem voru teknar við tilefnið:
07.02.2024
Salan hefur gengið vel í Nónhamri 2-4-6 og Hringhamri 1. Er svo komið að allar íbúðir eru seldar.
20.10.2023
Við hjá Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars hf. erum stolt af því að vera valin framúrskarandi fyrirtæki af Creditinfo fimmta árið í röð!
10.07.2023
Sala er hafin á íbúðum í 3 glæsilegum fjölbýlishúsum við Nónhamar 2, 4 og 6 í Hafnarfirði. Íbúðirnar eru frá 57,3 til 109,1 fm..
Íbúðirnar verða með vönduðum innréttingum, í húsi 4 frá GKS – Gamla Kompaníið og í húsum 2 og 6 frá Axis. AEG eldhústæki frá Ormsson. Íbúðirnar eru ýmist með góðum svölum eða veröndum.
Hægt er að skoða söluvefinn með því að smella hér
24.02.2022
Sala er hafin á íbúðum í glæsilegu 24 íbúða fjölbýlishúsi við Hringhamar 1 í Hafnarfirði. Íbúðirnar eru frá 68,4 til 86,9 fm.
Íbúðirnar verða með vönduðum innréttingum frá GKS – gamla kompaníið, og AEG eldhústækjum frá Ormsson. Íbúðirnar eru ýmist með góðum svölum eða veröndum.
Hægt er að skoða söluvefinn með því að smella hér
10.10.2022
Við hjá Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars hf. erum stolt af því að vera valin framúrskarandi fyrirtæki af Creditinfo fjórða árið í röð!
17.06.2022
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. hefur nú endurnýjað styrktarsamning sinn við HK.
Frá undirritun samningsins - frá vinstri: Gylfi Ómar Héðinsson (BYGG), Pétur Örn Magnússon (HK) og Gunnar Þorláksson (BYGG)
12.04.2022
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. hefur hafið uppbyggingu á 2. áfanga í Hlíðahverfi Reykjanesbæ.
Um er að ræða rað- par- og fjölbýlishús, samtals 200 íbúðir.
Íbúðirnar eru tveggja til fimm herbergja, stærðir eru á bilinu 85 – 200 fermetrar.
18.02.2022
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. er með 75 íbúðir í byggingu við Nónhamar 2-4 og 6 og Hringhamar 1 í Hamraneshverfi í Hafnarfirði.
Um er að ræða tveggja til fjögurra herbergja íbúðir og eru stærðirnar á bilinu 72-109 m2.
Öll húsin er klædd að utan, íbúðir með sér inngangi og hiti er í gólfum.
Afhending fyrstu íbúða er áætluð um næstu áramót og fyrstu íbúðirnar fara í sölu þegar líða fer á árið.
10.12.2021
Ár hvert senda íbúar Reykjanesbæjar inn ábendingar um vel heppnuð umhverfisverkefni í bænum. Valnefnd fer svo í gegnum ábendingarnar og veitir viðurkenningar fyrir það sem þykir skara framúr.
Í ár fær BYGG hf. verðlaun fyrir markvissa framkvæmd og uppbyggingu í Hlíðarhverfi.
Frá verðlaunaafhendingunni í Hljómahöllinni. Frá vinstri, Hörður Gylfason frá BYGG, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Hafþór Hilmarsson frá BYGG.
06.05.2021
Nýverið var merkum áfanga náð hjá BYGG hf. þegar síðasta nýja íbúðin í Lundi var seld.
Það var í byrjun maí 2005 var hafist handa við að rífa þau rúmlega 20 hús sem áður tilheyrðu bóndabýlinu Lundi.
Þetta voru fjós, hlaða, íbúðarhús, fjölmargir kofar og geymslur sem mynduðu lítinn kjarna í Fossvoginum sem máttu muna sinn fífil fegurri eins og sjá má hér í myndbandinu:
Nú 16 árum síðar er svæðið gjörbreytt, BYGG hf. búið að reisa um 400 íbúðir í fjölbýlis-, par- og raðhúsum.
Hverfið er vinsælt og var fjölbýlishúsahluti Lundar valinn gata ársins í Kópavogi árið 2020.
22.03.2021
Nú er Naustavör 44-50 í hinu vinsæla bryggjuhverfi við Kársnes komin í sölu.
Smellið hér til að skoða söluvef.
11.03.2021
Vinna gengur vel í Hamranesi í Hafnarfirði þar sem byggðar verða 75 íbúðir.
18.02.2021
Vinna er hafin við grunna í Hamranesi í Hafnarfirði þar sem BYGG mun byggja alls 75 íbúðir. Áætlað er að afhending íbúða verði á næstu 18-22 mánuðum.
23.12.2020
Salan á eignum í Hlíðarhverfi í Reykjanesbæ hefur gengið vel og er svo komið að allar eignir í fyrsta áfanga eru seldar.
17.12.2020
Nú eru allar íbúðir seldar í Strikinu 1, Sjálandi.
02.12.2020
Þau voru ekki lengi að seljast síðustu parhúsin í Lundi. Einnig hefur salan í Lundi 22 gengið gríðarlega vel og eru aðeins 2 íbúðir óseldar. Þetta eru því 2 síðustu nýju íbúðirnar í Lundi og hver að verða síðastur að tryggja sér nýja íbúð í þessu vinsæla hverfi.
Hægt er að skoða söluvef Lundar 22 með því að smella hér.
19.11.2020
Þá höfum við hjá Byggingafélagi Gylfa og Gunnars lokið við okkar verkþátt í þessu áhugaverða og skemmtilega verkefni. Það hefur verið frábært að hafa fengið tækifæri á að koma að framkvæmdum framtíðar æfingarsvæðis knattspyrnuliða í Reykjanesbæ.
Vonum við svo innilega að ungir sem aldnir komi til með að njóta sín á nýjum upphituðum gervigrasvelli.
04.11.2020
Nú eru seinustu 2 parhúsin í Lundi komin í sölu - frábær staðsetning. Skoðið húsin með því að smella hér.
11.10.2020
Annað árið í röð kemst Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. í hóp þeirra 2% fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði Creditinfo til að geta kallast Framúrskarandi Fyrirtæki.
07.10.2020
Það gengur vel að selja í bryggjuhverfinu á Kársnesi. Nú er það Naustavör 11 sem er komin í sölu. Skoðið íbúðir með því að smella hér.
25.09.2020
Lundur 22 er kominn í sölu. Frábærar eignir á skjólsælum stað austast í Lundi. Skoðið íbúðir með því að smella hér.
09.09.2020
Fjölbýlishúsahluti Lundar er gata ársins í Kópavogi í ár. Af því tilefni afhjúpaði forseti bæjarstjórnar, Margrét Friðriksdóttir, skilti þar sem kemur fram að Lundur sé gata ársins.
Auk þess að útnefna Lund götu ársins í bænum gróðursettu Margrét og Kristján Pálsson, formaður íbúasamtaka Lundar, tré á svæðinu. Viðstaddir voru m.a. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, og Andri Steinn Hilmarsson, formaður umhverfis- og samgöngunefndar.
Bæjarstjórn Kópavogs velur ár hvert götu ársins í Kópavogi að fenginni tillögu umhverfis- og samgöngunefndar bæjarins. Fjölbýlishúsahluti Lundar varð fyrir valinu „enda gatan samsett af fallegum byggingum, grænu yfirbragði og umhverfi sem er heillandi og tekur vel á móti íbúum og gestum“, eins og fram kom í rökstuðningi nefndarinnar.
5.3.2020
Nú er Naustavör 36-42 komin í sölu. Um er að ræða 44 íbúða fjölbýlishús í Bryggjuhverfinu í vesturbæ Kópavogs.
Íbúðirnar eru frá 84-208 fm. Hægt er að skoða söluvef með því að smella hér.
6.11.2019
Sala er hafin á íbúðum í glæsilegu 18 íbúða fjölbýlishúsi við Naustavör 9 í Bryggjuhverfinu í vesturbæ Kópavogs.
Íbúðirnar eru frá 83-182 fm. Hægt er að skoða söluvef með því að smella hér.
23.10.2019
Árlega vinnur Creditinfo greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitir Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur. Í ár hlaut Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. verðlaunin.
Til þess að hljóta þessi verðlaun þurfa fyrirtæki að uppfylla ýmis skilyrði sem snúa að rekstrinum.
Má þar meðal annars nefna lánshæfi, jákvæða rekstrarafkomu, eiginfjárhlutfall, ársreikningaskil, rekstrartekjur og eignastöðu.
Við hjá Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars erum stolt af því að komast í þennan hóp sem aðeins 2% fyrirtækja komast í.
12.9.2019
Nú eru komin í sölu raðhúsin Lundur 80-84. Hægt er að skoða söluvef með því að smella hér.
Sala er hafin á rúmgóðum rað- og parhúsum við Lund í Kópavogi. Húsin eru 230-241 fm og eru á tveimur hæðum með bílskúr. Húsin verða afhent tilbúinn til innréttinga að innan en einnig er möguleiki á að fá þau lengra kominn. Húsin eru frágengin að utan. Lóð verður frágengin svo og bílastæði. Stéttar eru hellulagðar og hiti er í gangstíg framan við. Bílastæði eru hellulögð. Lóð er frágengin með grasþökum, timburverandir við húsin og gróður.
Nánari upplýsingar hér.
18.4.2019
Nú eru komin í sölu glæsileg rað- og parhús í Lundi í Kópavogi. Um er að ræða 4 parhúsaeiningar og 6 raðhúsaeiningar. Hægt er að skoða söluvef með því að smella hér.
14.3.2019
Í sumar koma í sölu glæsileg rað- og parhús í Lundi í Kópavogi. Um er að ræða 6 parhúsaeiningar í Lundi 26-28 og 3 raðhúsaeiningar í Lundi 80-84.
Fylgist með hér á bygg.is.
13.02.2019
Sala er hafin á íbúðum í glæsilegu 44 íbúða fjölbýlishúsi við Naustavör 28-34 í Bryggjuhverfinu í vesturbæ Kópavogs
Íbúðirnar eru frá 76.46 til 244.9 fm, 2ja til 4ra herbergja.
Smellið hér til að skoða söluvef.
12.12.2018
Nú er hafin sala á íbúðum í Strikinu 1 í Sjálandshverfinu í Garðabæ. Íbúðirnar eru fyrir 60 ára og eldri.
Alls er um 42 íbúðir að ræða og eru stærðir á bilinu 84 til 174 fermetrar, 2ja til 3ja herbergja.
Smellið hér til að skoða söluvef.
30.08.2018
Sala er hafin í fyrsta áfanga Hlíðarhverfisins í Reykjanesbæ.
Þarna er um að ræða blandaða byggð einbýlishúsa, parhúsa, raðhúsa og lágreistra fjölbýlishúsa..
Smellið hér til að skoða söluvef.
29.08.2018
Sala er hafin á íbúðum í glæsilegu 19 íbúða fjölbýlishúsi við Naustavör 22-26 í Bryggjuhverfinu í vesturbæ Kópavogs.
Íbúðirnar eru frá 91.6 til 232.5 fm. og verða með vönduðum íslenskum innréttingum frá Brúnás og vönduðum AEG eldhústækjum. Íbúðirnar eru ýmist með góðum svölum eða stórum timburveröndum. Stæði í bílageymslu fylgja öllum íbúðum.
Smellið hér til að skoða söluvef.
18.08.2018
Framkvæmdir ganga gríðarlega vel í Hlíðarhverfinu í Reykjanesbæ eins og sjá má á þessum myndum.
Efri myndin er tekin fyrir ári síðan, þann. 18.08.2017 en sú neðri í dag.
05.06.2018
Á dögunum var undirritaður samningur milli Byggingarfélags Gylfa og Gunnars (BYGG) og HK.
BYGG hefur verið áberandi í uppbyggingu Kópavogs undanfarin ár og byggt ótalmargar eignir í bæjarfélaginu.
Samningurinn milli HK og BYGG er til fjögurra ára og verður BYGG í kjölfarið aðalastyrktaraðili HK.
Allir keppnisbúningarfélagsins munu vera merktir lógó-i BYGG næstu fjögur árin.
Meðfylgjandi eru myndir frá undirskrift.
Frá vinstri til hægri: Frosti Reyr Rúnarsson - formaður knattspyrnudeildar, Gunnar Þorláksson - BYGG, Sigurjón Sigurðsson - formaður HK, Gylfi Ómar Héðinsson - BYGG, Magnús Gíslason - varaformaður HK og Atli Geir Gunnarsson - BYGG
.
Frá vinstri til hægri: Frosti Reyr Rúnarsson - formaður knattspyrnudeildar, Gunnar Þorláksson - BYGG, Sigurjón Sigurðsson - formaður HK, Gylfi Ómar Héðinsson - BYGG, Magnús Gíslason - varaformaður HK og Atli Geir Gunnarsson - BYGG
8.3.2018
Sala íbúða á Kársnesinu hefur gengið gríðarlega vel. Allar íbúðir í Naustavör 7 eru seldar og sala á Naustavör 16-20 fer vel af stað.
27.2.2018
Naustavör 16-18 og Naustavör 20 eru nú komin í sölu í bryggjuhverfinu vestast í Kópavogi - frábær staðsetning!
Skoða má söluvef fyrir Naustavör 16-18 með því að smella hér og hús nr. 20 má skoða hér.
6.2.2018
Nú er Lundur 7-13 kominn í sölu. Hér er um að ræða íbúðir í 3 húsum vestast í Lundi.
Skoða má söluvef með því að smella hér.
12.01.2018
Mikil ásókn hefur verið í íbúðir í húsunum tveimur við Lund 8-18 og er svo komið að allar íbúðirnar eru seldar.
19.10.2017
Salan á Lundi 8-18 hefur farið gríðarlega hratt af stað. Allar íbúðir eru nú seldar í Lundi 8-12 og aðeins 3 eftir í Lundi 14-18.
4.10.2017
Nú er Lundur 8-18 kominn í sölu. Um er að ræða alls 13 íbúðir, stærðir frá 102,7 m2 upp í 178,2 m2.
Skoða má söluvef með því að smella hér.
2.10.2017
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hefur fengið afhenta tvo öfluga Volvo FH dráttarbíla ásamt Reisch malarvögnum.
31.8.2017
Sala er hafin á íbúðum í glæsilegu 17 íbúða fjölbýlishúsi við Naustavör 7 í Bryggjuhverfinu í vesturbæ Kópavogs.
Íbúðirnar eru frá 83-182 fm..
Skoða má söluvef hér.
18.8.2017
Búið er að grafa grunna og fylla í púða fyrir um það bil 100 íbúðir og byjað að slá upp sökklum fyrir einbýishúsum.
Fljótlega verður farið að vinna að fjölbýlishúsum og parhúsum og mögulega geta fyrstu íbúar flutt í hverfið þegar líður á næsta ár.
Frekari upplýsingar um Hlíðahverfi má finna hér.
10.8.2017
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars leggur mikinn metnað í frágang lóða. Því er sérstaklega ánægjulegt að Garðabær skuli hafa veitt lóð Nýhafnar 2-6 verðlaun.
Í umsögn dómnefndar segir: "Lóðin við Nýhöfn 2-6 Sjálandi er til fyrirmyndar. Öll trjábeð með góðu yfirborðsefni og algerlega hrein og plöntum skynsamlega raðað niður. Grasfletir eru í augljóslega slegnir reglulega."
Meiri upplýsingar má finna á vef Garðabæjar með því að smella hér.
23.7.2017
Gaman að segja frá því að nú eru allar íbúðir seldar í Löngulínu 20-26 í Sjálandinu, Garðabæ.
30.6.2017
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hefur nú endurnýjað og bætt við véladeild sína. Keyptar hafa verið þrjár hjólagröfur og ein 50 tonna beltagrafa - allar af Volvo gerð.
Á myndinni má sjá formlega afhendingu vélanna hjá Brimborg.
22.6.2017
Sala hefur gengið vel í Lundi 5 og er byrjað að afhenda fyrstu íbúðir til kaupenda.
21.6.2017
Rífandi sala í Lundi - allar íbúðir í Lundi 17-23 eru seldar.
8.4.2017
Sala gengur mjög vel í Sjálandi Garðabæ og er nú svo komið að allar íbúðir í Löngulínu 28-32 eru seldar.
7.4.2017
Í vikunni var tekin fyrsta skóflustunga fyrir nýju 500 íbúða hverfi í Reykjanesbæ. Hverfið kallast Hlíðarhverfi.
Frá vinstri: Hörður Már (fh. Miðlands), Guðlaugur (fh. Reykjanesbæjar), Gylfi Ómar (fh. BYGG), Kjartan Már bæjarstjóri (fh. Reykjanesbæjar), Atli Geir (fh. BYGG)
Frekari upplýsingar um hverfið má finna hér.
1.4.2017
Nú eru komið í sölu 9 íbúða hús við Nýhöfn 7 í Sjálandi Garðabæ. Nýhöfn 7 er þriggja hæða álkætt fjölbýlishús staðsett við sjávarkambinn, mikið og óhindrað sjávarútsýni er úr íbúðum
Íbúðirnar eru frá 105 – 258 fm.
Meiri upplýsingar má finna með því að smella hér.
17.1.2017
Sala hefur gengið gríðarlega vel í Lundi 17-23 og nú er aðeins ein íbúð eftir.
Hér er um að ræða íbúð 201 í húsi nr. 23.
Íbúðin er á 2 hæðum og er 186.9 fermetrar að stærð.
Grunnmynd neðri hæðar:
Grunnmynd efri hæðar:
Meiri upplýsingar má finna með því að smella hér.
3.11.2016
Nú eru komnar í sölu 38 íbúðir í Lundi 5. Frábært útsýni er úr húsinu yfir Fossvog og nágrenni.
Skoðið söluvef með því að smella hér.
9.9.2016
Á dögunum tók Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðabæjar skóflustungu við Strikið 1 í Sjálandinu.
Þar mun rísa 42 íbúða hús fyrir eldri borgara.
9.9.2016
Nú eru komnar í sölu 11 íbúðir í Lundi 25. Stærð íbúða er frá 111 til 179 fermetrar.
Skoðið söluvef með því að smella hér.
15.08.2016
Nú eru allar íbúðir seldar í Vindakór 10-12.
8.6.2016
Nú eru komnar í sölu 33 íbúðir í Löngulínu 20-26. Stærð íbúða er frá 93 til 188 fermetrar.
Mikið og óhindrað sjávarútsýni!
Skoðið söluvef með því að smella hér.
24.05.2016
Sala hefur gengið gríðarlega vel í Naustavör 2-12 á Kársnesinu og eru nú allar íbúðir seldar.
Framkvæmdir eru hafnar á næstu húsum sem liggja við höfnina og ráðgert er að íbúðir fari í sölu þegar líða fer á árið. Þar er um að ræða íbúðir í mörgum stærðum frá ca. 70 fm. og upp í 200 fm. og verða flestar með hafnar- og sjávar útsýni.
23.02.2016
Nú eru öll rað- og parhúsin seld sem komin voru í sölu í Lundi.
Byrjað verður á fleiri rað- og parhúsum í mars.
10.12.2015
Nú eru allar íbúðir seldar í Nýhöfn 2-4-6.
18.10.2015
Á dögunum var stórsteypa í Lundi 17-23. Plata yfir bílskýli steypt, tæpir 600 rúmetrar.
Sala hefur gengið mjög vel á Kársnesinu, allar íbúðir seldar í Naustavör 2-4 og 6, örfáar eftir í nr. 8-10 og 12.
1.10.2015
Nú eru komnar í sölu glæsilegar íbúðir í Lundi 17-23. Stærð íbúða er frá 98 til 238 fermetrar.
Skoðið söluvef með því að smella hér.
21.4.2015
Sala er hafin á íbúðum í sérlega glæsilegu 3ja hæða álklæddu fjölbýlishúsi við Löngulínu 28-32 í Sjálandi í Garðabæ. Íbúðirnar eru frá 105-188 fm. Íbúðirnar verða með vönduðum íslenskum innréttingum frá Brúnás og vönduðum AEG eldhústækjum. Íbúðirnar verða ýmist með tvennum svölum eða stórum timburveröndum og svölum. Stæði í bílageymslu fylgja öllum íbúðum.
Hægt er að skoða söluvef með því að smella hér.
3.9.2015
Nú eru komnar í sölu glæsilegar íbúðir í 5 hæða húsi við Vindakór 10-12. Stærð íbúða er frá 113.6 til 144 fermetrar.
Húsið er staðsett við mikla útivistarparadís, Elliðavatn og Heiðmörk er í göngufæri.
Vindakór 10 – 12 er þegar fullbúið og eru íbúðirnar tilbúnar til afhendingar nú þegar.
Skoðið söluvef með því að smella hér.
Nú eru allar íbúðir seldar í Lundi 2-6.
Nú eru komnar í sölu glæsilegar íbúðir í Bryggjuhverfinu í Kópavogi, nánar tiltekið við Naustavör 2 og Naustavör 4-8. Naustavör 10-12 mun svo koma í sölu síðar.
Skoðið glæsilegan söluvef með því að smella hér.
C-vottun SI staðfestir að reksturinn er í góðum höndum, studdur með öflugu verkbókhaldi, góðri skipulagningu og með mikla sérstöðu varðandi áherslur í öryggis- og heilbrigðismálum.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. hefur staðist úttekt á öðru þrepi áfangaskiptrar gæðavottunar Samtaka iðnaðarins og hlotið C-vottun.
Smellið hér til að skoða frétt á vef Samtaka Iðnaðarins.
Búið er að afhenda allar íbúðir í Lundi 4 og er fólk nú þegar farið að flytja inn.
Lundur 6 verður svo afhentur í október/nóvember næstkomandi.
Í Lundi er ganga framkvæmdir vel og mikil ásókn í íbúðir. 15 nýjar íbúðir voru afhentar í apríl í Lundi 2.
Bygg ehf. hefur nú hafið framkvæmdir við 41 íbúðir við Löngulínu 15-23 í Sjálandshverfinu í Garðabæ.
Áætlað er að sala hefjist í sumar.
Verið er að afhenda íbúðirnar í Lundi 92.
Er það fyrsta húsið sem er afhent í öðrum áfanga og er það samkvæmt áætlun.
Tökum að okkur margvísleg viðhaldsverkefni og endurbyggingar.
Fáið tilboð frá traustum aðila með áratuga reynslu.
Upplýsingar gefur Konráð í síma 693 7303.
Ath. Endurgreiðsla vsk. vegna vinnu er 100%
Fyrir Stuttu var undirritaður tímamótasamningur vegna kostunar á sýningum frá Formúlu 1 kappaksturinn á sjónvarpstöðinni Stöð 2 Sport. Það eru fyrirtækin BYGG, DHL, Lýsing og N1 sem munu færa íslenskum sjónvarpsáhorfendum Formúluna. Undirritunin fór fram í veglegri Formúluveislu sem haldin var í Perlunni að viðstöddum hátt í 500 manns. Við undirritunina voru Gylfi Ómar Héðinsson frá BYGG, Hermann Guðmundsson frá N1, Ari Edwald frá 365, Halldór Jörgensson frá Lýsingu og Shad Hallam frá DHL.