
Ásvellir 3–19 bjóða upp á fjölbreytt úrval af íbúðum sem henta ólíkum lífsstílum og fjölskyldugerðum. Lögð er áhersla á vel skipulögð rými, góða nýtingu og vandaðar lausnir sem stuðla að þægindum í daglegu lífi.

Glæsileg fjölbýli í skjólsælum Fossvogi.



Glæsilegar íbúðir til sölu á Kársnesi.

Glæsileg raðhús til sölu á besta stað í Hafnarfirði.


Til leigu tvö rými á fyrstu og annarri hæð við Borgartún 31. Einstök staðsetning miðsvæðis í helsta viðskiptahverfi Reykjavíkurborgar.

Rými á þriðju og fjórðu hæð til leigu að Vegmúla 2.

Vel staðsett húsnæði miðsvæðis í Reykjavík. Allt húsið er til leigu með eða án VSK – alls 3.228 m2.

Glæsilegt skrifstofuhúsnæði á þriðju hæð með 772 m2 pláss í boði.

Glæsilegt hús sem hentar ýmiss konar starfsemi. 4ra hæða atvinnuhúsnæði að Lambhagavegi 33 í Reykjavík.
Árið 1984 stofnuðu þeir Gylfi Ómar Héðinsson múrarameistari og Gunnar Þorláksson húsasmíðameistari Byggingarfélag Gylfa og Gunnars, eða BYGG eins og það er betur þekkt.
Á fyrstu árum fyrirtækisins var takmarkað framboð af lóðum og tóku þeir félagar til við að fjárfesta í landi og sjá sjálfir um skipulag og síðar jarðvegsvinnu og gatnagerð í samvinnu við önnur fyrirtæki og sveitarfélög.
Félagið hefur verið mikill frumkvöðull í gegnum árin og byggt upp heilu hverfin ásamt atvinnu- og verslunarhúsnæði. Stærsta einstaka verkefnið var án efa bygging Smáralindar, 62.500 fm verslunarhúsnæði sem var tilbúin 2001.
BYGG hefur fest sig í sessi sem eitt farsælasta byggingarfélag á Íslandi með yfir 40 ára reynslu og sögu. Það er þekkt fyrir traust og örugg vinnubrögð, vandaðan frágang og efndir á umsömdum afhendingartíma.
0
40
0
4430

REYNSLA – FAGMENNSKA – METNAÐUR
Gildin okkar lýsa því hvernig við störfum.
Við höfum áralanga reynslu af byggingarstarfsemi og höfum farið í gegnum öll stig byggingarferilsins með sóma sl. 40 ár. Við höfum byggt yfir 4000 íbúðir og fjöldann allan af atvinnuhúsnæði.
Með reynsluna á bakinu störfum við af fagmennsku og veljum efni og aðferðir sem eru hagkvæmar fyrir umhverfið og viðskiptavini okkar. Hjá okkur starfar fjöldi af fagmönnum og sérfræðingum sem sinna starfi sínu af kunnáttu og alúð. Fagmennska okkar skilar gæðaafurðum til okkar viðskiptavina.
Metnaður hefur einkennt okkar starfsemi frá fyrstu skóflustungu. Við leggjum okkur alltaf fram við að gera vel og skila af okkur góðum verkum. Með því að kynna okkur nýjustu tækni og aðferðir og vera með puttann á púlsinum búum við yfir metnaði til að gera alltaf hlutina eins vel og hægt er.


